Telja líklegt að Bandaríkjaher beri ábyrgð á loftárás á íranskan stúlknaskóla

Líklegt þykir að Bandaríkjaher beri ábyrgð á loftárás á íranskan stúlknaskóla um helgina, samkvæmt rannsakendum á vegum hersins. 150 nemendur létust í árásinni samkvæmt yfirvöldum í Íran. Reuters hefur þetta eftir tveimur bandarískum embættismönnum sem vildu ekki koma fram undir nafni. Rannsakendurnir hafa ekki lokið rannsókninni. Reuters tókst ekki að fá frekari upplýsingar um rannsóknina, eins og hvaða sönnunargögn hafi leitt til þess að rannsakendurnir telji þetta, hvaða hergögn voru notuð í árásinni, hver bar ábyrgð á henni og af hverju Bandaríkin réðust á skólann. Stúlknaskólinn er í Minab í suðurhluta Írans. Hann varð fyrir loftárás á laugardag, fyrsta dag árása Ísraels og Bandaríkjanna á Íran. Ali Bahreini, sendiherra Írans hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf í Sviss, sagði 150 nemendur hafa verið drepna í árásinni. Reuters hefur ekki tekist að sannreyna þann fjölda. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði á miðvikudag að málið væri til rannsóknar hjá hernum. Marco Rubio, utanríkisráðherra, sagði við fjölmiðla á mánudag að Bandaríkin myndu ekki vísvitandi ráðast á skóla. Fyrr í dag sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðli sínum Truth Social að aðeins skilyrðislaus uppgjöf Írans komi til með að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum. Eftir að samningi um frið verði náð og að nýr, frábær og viðunandi leiðtogi verði valinn, ætli Bandaríkin og bandamenn að vinna hart að því að bjarga Íran „frá barmi eyðileggingar og gera það efnahagslega stærra, betra og sterkara en nokkru sinni fyrr,“ eins og hann orðaði það. Masoud Pezeshkian, forseti Írans, sagði einnig í færslu á samfélagsmiðlinum X að sumar þjóðir hafi hafið sáttaumleitanir til að binda enda á stríðið. Katar, Tyrkland, Egyptaland og Óman hafa öll boðist til að miðla málum síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran fyrir sjö dögum.