Atvinnuleysi í Bandaríkjunum jókst óvænt í febrúar. Samkvæmt upplýsingum frá vinnumálaráðuneytinu fækkaði störfum um 92 þúsund í síðasta mánuði og mælist atvinnuleysi nú 4,4 prósent. Störfum fækkaði í flestum atvinnugreinum og voru heilbrigðisstarfsmenn og ríkisstarfsmenn meðal þeirra sem misstu vinnuna vegna samdráttarins. Alríkisstörfum fækkaði um tíu þúsund í síðasta mánuði, en frá október 2024 hefur alríkisstarfsmönnum fækkað um 330 þúsund eða 11%. Þróunin á sér stað þvert á spár sérfræðinga sem búist höfðu við stöðugum vexti á vinnumarkaði í febrúar. „Hvaða stöðugleiki?“ er haft eftir Samuel Tombs, yfirhagfræðingi hjá Pantheon Macroeconomics, í samtali við fjölmiðla. „Hugmyndin um að vinnumarkaðurinn hafi reist sig við fellur um sjálfa sig með þessari skýrslu.“ Að sögn sérfræðinga gætu tölurnar bent til þess að farið sé að hægja á bandaríska hagkerfinu. Það standi hins vegar þegar höllum fæti vegna átakanna í Íran og mögulegra áhrifa þeirra á olíuverð.