Næsti kjara­samningur verður að vera VR samningur

Óvíst er hvort forsendur kjarasamnings sem var undirritaður fyrir tveimur árum munu standa, og því ljóst að stéttarfélög verða að undirbúa sig fyrir átök. Nú standa yfir stjórnarkosningar hjá stéttarfélaginu VR, þar sem ég er einn af tíu frambjóðendum. Fyrst og fremst óska ég félagsfólki að kynna sér frambjóðendur og nýta atkvæðisrétt sinn, en auðvitað vil ég verða fyrir valinu. Því legg ég hér fram sýn mína fyrir komandi kjaravetur.