Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, hafa sagt skilið við flokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn. Þau segja að þeim hafi verið skipt út sökum andstöðu sinnar við borgarlínu. Marta og Kjartan hafa setið í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn um árabil en í prófkjöri fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar höfnuðu þau í þriðja og fjórða sæti á lista. Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var skipuð uppstillingarnefnd sem réðst í umtalsverðar breytingar á listanum og þar er hvorki Mörtu né Kjartan að finna. Þau hafa fært sig yfir í Miðflokkinn en búast ekki við að taka sæti á lista. „Okkur hefur ekki verið boðið sæti og það var aldrei markmiðið að við færum yfir í aðra flokka til að þiggja sæti því bæði óskuðum við eftir sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins en það var augljóst að okkur var skipt út fyrir að vera andvíg borgarlínuverkefninu. Sömuleiðis var öðrum vippað aftar á listann í áhrifalaus sæti,“ segir Marta. „Mér skilst að það hafi komið til greina að hafa okkur einhvers staðar neðarlega á lista í algerlega áhrifalausum sætum, og ég gat að minnsta kosti ekki hugsað mér það,“ bætir Kjartan við.