Selfosskirkja 70 ára og kirkju­kórinn 80 ára

Það stendur mikið til í Selfosskirkju í marsmánuði því þá fagnar kirkjan 70 ára afmæli sínu og kirkjukórinn 80 ára afmæli. Sérstök hátíðarmessa verður á pálmasunnudag þar sem biskup Íslands predikar en kirkjan var einmitt vígð á pálmasunnudag 1956.