Sjávarútvegur líklegasti ágreiningurinn í mögulegum aðildarviðræðum Íslands við ESB

Heather Grabbe, sérfræðingur um stækkunarmál ESB, segir að sjávarútvegur yrði líklega stærsta úrlausnarefnið ef Ísland hæfi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Hún segir stöðu Evrópu gerólíka þeirri sem var uppi árið 2009 þegar Ísland sótti fyrst um aðild. „Ég held að sjávarútvegur yrði erfiðasta úrlausnarefnið,“ segir Grabbe. „Ísland og ESB þyrftu bæði að gefa eitthvað eftir og að sjálfsögðu kæmu hvalveiðar upp, sem er viðkvæmt mál, því ég tel nokkuð víst að ESB geti ekki leyft ríki að halda áfram hvalveiðum eftir inngöngu.“ 95% af reglubókinni verður ekki haggað Grabbe bætir við að þótt ríki sem sækist eftir aðild þurfi að samþykkja meginreglur Evrópusambandsins sé svigrúm til þess að semja um aðlögun. „95% af reglubók ESB verður ekki hagað því ríkin 27 hafa samþykkt hana. En ríki sem vill aðild getur alltaf samið um tímaáætlun fyrir innleiðingu ESB-reglna.“ Að sögn Grabbe gæti aðildarferli Íslands gengið tiltölulega hratt ef viðræður hæfust á ný.„Ísland var búið að loka ellefu köflum og hefur þegar innleitt margar reglur og reglugerðir ESB sem hluti af EES þannig að aðildarferlið gæti verið hratt, kannski eitt ár og það gæti rutt brautina að frekari stækkun.“ „Stærra ESB verður meira aðlaðandi“ Grabbe segir stöðu Evrópu hafa breyst verulega frá því Ísland hóf fyrst viðræður árið 2009, sér í lagi vegna breyttrar stöðu öryggismála og mikilvægi norðurslóða. „ESB er meira umhugað um norðurslóðir en áður fyrr vegna loftslagsbreytinga og landpólitískrar fjandsemi þar, aukinnar umferðar um svæðið og mögulegrar spennu. ESB hefur einnig áttað sig á að það er að minnka í efnahagslegu tilliti samanborið við heiminn allan á meðan stór hagkerfi eins og það kínverska vaxa. Það þýðir að stærra ESB verður meira aðlaðandi, „segir Grabbe. Viðtal fréttastofu við Heather Grabbe má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Sérfræðingur um stækkunarmál ESB segir að aðildarferli Íslands gæti gengið hratt ef viðræður hæfust á ný. Hún segir sjávarútveg líklegasta ágreiningsmálið. Staða Evrópu hafi tekið verulegum breytingum síðustu ár.