Kristinn skákar sitjandi oddvita og leiðir Pírata í Reykjavík

Kristinn Jón Ólafsson fór með sigur af hólmi í prófkjöri Pírata í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hann tekur við fyrsta sætinu af Alexöndru Briem, sitjandi oddvita, sem sóttist eftir endurkjöri. Alexandra situr í öðru sæti listans, en í því þriðja er Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, annar varaborgarfulltrúi Pírata í borginni. Alls voru 230 atkvæði greidd í kosningunni og voru frambjóðendur tíu talsins. Þetta kemur fram á kosningasíðu flokksins. Í fréttatilkynningu Pírata segir að flokkurinn muni kynna fullskipaðan framboðslista til borgarstjórnarkosninga á næstu dögum. Listi Pírata í Reykjavík Kristinn Jón Ólafsson Alexandra Briem Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Unnar Þór Sæmundsson Olga Margrét Cilia Hans Alexander Margrétarson Hansen Tinna Helgadóttir Oddur Björn Jónsson Jökull L. Veigarsson Guðni Freyr