Yfirvöld í Íran segja yfir þúsund hafa verið drepin í árásum Ísraela og Bandaríkjamanna þar. Í hið minnsta 217 hafa látist í Líbanon síðan Ísraelsher hóf loftárásir á mánudag. Hallgrímur Indriðason talaði um stöðu stríðsins í Mið-Austurlöndum í sjónvarpsfréttum í kvöld. Hann segir hvorki lát á árásum á Íran né á árásum Írans á önnur lönd. „Hvað Íran varðar þá eru árásirnar orðnar harðari,“ segir Hallgrímur. Íbúar í Teheran séu óttaslegnir og hafi sagt síðustu nótt þá verstu hingað til. „Enda tala Ísraelsmenn og Bandaríkjamenn nú um að hernaðurinn sé kominn á nýtt stig,“ segir hann. „Forseti Írans sagði þó í dag að það væri unnið að friðarviðræðum án þess að tilgreina nánar hver væri að því.“ Bandaríkjaforseti hefur sagt að aðeins skilyrðislaus uppgjöf Írans muni binda enda á stríðið.