Þrír friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna voru særðir þegar herstöð þeirra í suðurhluta Líbanon varð fyrir árás í kvöld. Fréttaveitan AFP hefur þetta eftir UNIFIL, friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, og Ganahers. Samkvæmt hernum voru höfuðstöðvar herfylkis þeirra í UNIFIL fyrir tveimur flugskeytaárásum. Matsalur liðsforingja hafi einnig orðið fyrir árás og brunnið til grunna. Tveir friðargæsluliðar frá Gana eru í lífshættu og var annar þeirra fluttur á sjúkrahús í Beirút til meðferðar, að sögn hers Gana. Einn friðargæsluliði til viðbótar er sagður hafa orðið fyrir miklu áfalli. Hvorki UNIFIL né her Gana tilgreindu hver stóð á bak við árásina en hana á að rannsaka. Joseph Aoun, forseti Líbanons, fordæmdi árásina og sakað Ísrael um að hafa beint henni að UNIFIL. 700 franskir hermenn í UNIFIL Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fordæmdi árásina einnig eftir að hafa rætt við starfsbræður sína í Líbanon og Sýrlandi. Hann sagði að Frakkland myndi áfram taka virkan þátt í UNIFIL, en í friðargæsluliðinu eru um 700 franskir hermenn. „Frakkland vinnur með samstarfsaðilum sínum að því að koma í veg fyrir að átökin breiðist frekar út á svæðinu,“ sagði Macron á samfélagsmiðlinum X og lagði áherslu á „lykilhlutverk“ friðargæsluliðsins í að viðhalda stöðugleika. Friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, UNIFIL, hefur starfað í Líbanon frá því að Ísrael gerði innrás í landið árið 1978. Hlutverk UNIFIL var að koma á friði og öryggi í Líbanon og aðstoða ríkisstjórn Líbanons við að ná aftur völdum í suðurhluta landsins meðal annars með því að staðfesta brotthvarf Ísraelshers þaðan.