Gul viðvörun gengur í gildi fyrir Suðurland og miðhálendið núna klukkan eitt vegna hvassviðris, storms eða roks með éljagangi og lélegu skyggni. Veðurstofan varar við slæmu ferðaveðri á Suðurlandi. Með morgninum, undir klukkan sex, tekur viðvörun gildi fyrir Breiðafjörð, Vestfirði og Norðurland og varir fram eftir degi. Brýnt er að fylgjast með þróun mála hjá Veðurstofunni og á vef Vegagerðarinnar . Á vef Veðurstofunnar segir að víða megi búast við éljum og slæmu skyggni. Akstursskilyrði verða varasöm ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum. Veðurspáin er annars svohljóðandi Suðlæg átt í nótt, víða stinningskaldi, allhvass vindur eða stormur og él eða slydduél. Úrkomulítið norðaustanlands. Allhvass suðvestanvindur, hvassviðri, stormur eða rok á morgun, hvassast á norðvestanverðu landinu. Áfram él eða slydduél, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti frá frostmarki að fimm stigum. Dregur úr vindi seinnipartinn og kólnar.