Hyggist einhver ríki Evrópu ganga til liðs við Ísrael og Bandaríkin í árásum á Íran verða þau skotmörk Íranshers, sagði Majid Takht-Ravanchi, aðstoðarutanríkisráðherra landsins, í samtali við France 24 í kvöld. Ísraelsher hefur gert þungar loftárásir á Teheran í kvöld og segist hafa grandað eldflaugum á leiðinni frá Íran. Amir Saeid Iravani, sendiherra Íran hjá Sameinuðu þjóðunum, segir á fjórtánda hundrað almennra borgara hafa týnt lífi frá því stríð hófst fyrir viku. Þúsundir hafi særst og örkumlast. Vladimír Pútín Rússlandsforseti vottaði Masoud Pezeshkian Íransforseta dýpstu samúð vegna dauða Ali Khameinis æðstaklerks, annarra embættismanna og almennra borgara í landinu. Þeir ræddu saman símleiðis í dag og Pútín áréttaði þá afstöðu sína að Bandaríkjamenn og Ísraelar skyldu hætta árásum umsvifalaust og að diplómatísk leið yrði fundin. Pezeshkian þakkaði Pútín stuðninginn og tíundaði stöðu mála í Íran ítarlega, að því er segir í tilkynningu rússnesku forsetaskrifstofunnar.