Þrír friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna særðust þegar herstöð þeirra í suðurhluta Líbanon varð fyrir árás í gær, að sögn friðargæslusveitar SÞ og hersins í Gana, en forseti Líbanon sakar Ísrael um að hafa beint árásinni að þeim. Árásin var gerð á sama tíma og Ísrael og Hezbollah, samtök studd af Íran, skiptust á skotum eftir að stríðið í Mið-Austurlöndum breiddist út...