Börnum undir sextán ára aldri verður bannað að nota samfélagsmiðla

Stjórnvöld í Indónesíu hafa ákveðið að banna að börn undir sextán ára aldri fái aðgang að samfélagsmiðlum. Indónesískum börnum verður bannað að nota miðla á borð við Faceboook og Instagram.EPA Samkvæmt tilkynningu fjarskiptaráðuneytisins verða reikningar barna gerðir óvirkir frá og með 28. mars. Bannið nær meðal annars til miðlanna Instagram, YouTube, Tik Tok, Facebook og X og er ætlað að vernda börn og ungt fólk fyrir einelti, svikastarfsemi, netfíkn og klámi. Þrír mánuðir eru síðan Ástralía reið á vaðið með að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla.