Bandaríski varnarmálaráðherrann Pete Hegseth kveðst lítt uggandi yfir orðrómi um að Rússar hafi veitt Írönum leynilegar upplýsingar um staðsetningar bandarískra hersveita í Mið-Austurlöndum. Hegseth vildi ekki staðfesta orðróminn í viðtali í fréttaskýringaþættinum 60 Minutes en sagði Bandaríkin með augu á hverjum fingri. „Við höfum bestu leyniþjónustu í heimi og æðsti yfirmaður heraflans veit vel hverjir eru að tala saman,“ sagði Hegseth og vísaði þar til Donalds Trump forseta. Brugðist verði við allri óæskilegri hegðun og það af krafti. Rússnesk stjórnvöld sögðu í gær að Vladimír Pútín forseti hefði vottað Masoud Pezeshkian Íransforseta samúð vegna dauða æðsta leiðtogans og að báðir hefðu sagst ætla að halda samskiptum áfram.