Ónafngreind kona segir Donald Trump hafa reynt að neyða sig til munnmaka á níunda áratug síðustu aldar. Talskona Hvíta hússins segir ásakanirnar tilhæfulausar. Þessi orð konunnar má sjá í samantekt á yfirheyrslu Alríkislögreglunnar yfir henni í skjölum, tengdum Epstein-málinu, frá 2019 sem dómsmálaráðuneytið birti á vefnum á fimmtudag. Konan segir kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein hafa komið henni í kynni við Trump þegar hún var þrettán til fimmtán ára, að því er segir í umfjöllun Reuters . Dómsmálaráðuneytið varaði við að þau kynnu að innihalda ofsafengnar og ósannar ásakanir á hendur Trump og Karoline Leavitt, blaðafulltrúi Hvíta hússins, segir engar sannanir fyrir yfirlýsingum konunnar sem séu algerlega tilhæfulausar. Í samantektinni má einnig sjá að konan segir aðspurð tilgangslaust að tjá sig frekar um Trump á þessum tímapunkti. Hann var þá forseti. Konan sagði mestar líkur á að ekkert verði gert með hvað sem hún hefði að segja. Ráðuneytið segir skjölin ranglega hafa verið merkt sem tvírit og því hafi þau ekki verið birt fyrr en nú. Demókratar í þinginu hafa sakað ráðneytið um að halda eftir skjölum sem tengjast forsetanum og rannsóknarnefnd hefur ákveðið að kalla ráðherrann Pam Bondi aftur til yfirheyrslu um meðferð þeirra. Trump segist hafa slitið á öll tengsl við Epstein snemma á öldinni og hafi ekki vitað af kynferðisbrotum hans. Alríkislögreglan segir Trump hafa sagt lögreglu á Palm Beach að allir vissu af athæfi Epsteins skömmu eftir að fyrstu ásakanirnar birtust.