Íbúar úkraínsku höfuðborgarinnar Kyiv voru í nótt beðnir að halda sig í loftvarnarbyrgjum vegna eldflaugaárása Rússlandshers. Slökkvilið að störfum eftir loftárás á Kyiv 22. febrúar síðastliðinn.AP / Sergei Grits Rússar hafa einnig gert dróna- og eldflaugaárásir á Kharkiv, næststærstu borg landsins, þar sem björgunarsveitir leita fólks undir rústum háhýsis. Yfirvöld þar segja atlögur einnig hafa beinst að Kyiv-hverfinu í borginni sem samanstendur af íbúðabyggð, iðnaðarsvæðum og menntastofnunum. Að minnsta kosti sjö hafa særst í atlögunum, þar á meðal ellefu ára drengur.