Þota Icelandair kemur inn til lendingar á Akureyrarflugvelli fyrir nokkru þegar illviðri sett strik í ferðir um Keflavíkurflugvöll.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Illviðrið sem gengur yfir hefur áhrif á flugsamgöngur á Keflavíkurflugvelli. Brottför Icelandair til Prag hefur verið frestað til klukkan ellefu og ferða til Amsterdam, Parísar og Helsinki á áttunda tímanum aflýst. Nokkrar brottfarir á þeim tíma eru enn á áætlun samkvæmt vef Isavia en flestum brottförum og áætluðum lendingum hefur verið frestað um nokkra klukkutíma.