Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum
Tveir menn voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu ávana- og fíkniefna. Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er málið í rannsókn.