Verðbólgan er 475 af hundraði — hvergi í heiminum meiri

Mesta verðbólga veraldar geisar í Venesúela, hún nemur 475 prósentum á ársgrundvelli að sögn seðlabanka landsins. Delcy Rodriguez, sitjandi forseti Venesúela, á fundi með Doug Burgum innanríkisráðherra Bandaríkjanna.EPA / MIGUEL GUTIERREZ Ástandið er verra en spádómar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um 269,9 prósenta verðbólgu gerðu ráð fyrir. Verðlag hefur hækkað um 52 af hundraði fyrstu tvo mánuði ársins en seðlabankinn lét eiga sig að spá fyrir um verðlagsþróun ársins. Efnahagsþvinganir Bandaríkjanna gegn Nicolas Maduro, fyrrverandi forseta, hafa haft mikil áhrif á afkomu Venesúelabúa. Bandaríkjaher steypti Maduro af stóli í janúar og flutti hann til New York þar sem hann var ákærður fyrir eiturlyfjaviðskipti.