Bíla­stæði eða blóma­ker?

Svarið er bæði - en ekki með því að skipta einu út fyrir annað. Undanfarin misseri hefur orðið sífellt algengara að bílastæðum í miðborg Reykjavíkur sé breytt í blómaker. Blóm eru falleg og gróður bætir borgarumhverfið, það er enginn að draga það í efa. Vandinn skapast hins vegar þegar slíkar breytingar eru gerðar án samráðs við íbúa og notendur svæðisins - og án þess að raunhæfar lausnir komi í staðinn.