Gul viðvörun er í gildi á meirihluta landsins þar til klukkan um hádegi eða seinni part í dag. Lengst eru viðvaranir í gildi á Norðurlandi eystra, Ströndum, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, eða til klukkan 16. Viðvörun rennur fyrst út í Breiðafirði klukkan 12 en svo klukkan 14 á Suðurlandi og á miðhálendi. Sums staðar eru líkur á eldingum líkt og í gær.