„Engar varan­legar undan­þágur í boði lengur“

Fróðlegt viðtal var í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær þar sem rætt var við Heather Grabbe, sérfræðingi hjá Brugel-hugveitunni í Brussel, sem sagði meðal annars aðspurð hvað umsóknarríki gætu samið um við Evrópusambandið að hægt væri að semja um aðlögunartíma, sem einnig hafa verið kallur tímabundnar undanþágur eða tímabundin aðlögun, en varanlegar undanþágur (opt-outs) væru hins vegar ekki lengur á boðstólum.