Á síðustu misserum hefur umræða um meðferð og umönnun við lífslok og sjálfræði fólks orðið sýnilegri á Íslandi. Í því samhengi er fróðlegt að líta til Skotlands, þar sem nýlega var fjallað um tengsl líknarmeðferðar og dánaraðstoðar. Í október síðastliðnum birti Kathleen Robson grein um þessi mál og á sú umfjöllun erindi langt út fyrir landamæri Skotlands.