Í fyrsta sinn á Ís­landi: Kol­beinn mætir austur­rískum rotara í Gamla bíó

Fyrsta atvinnumannakvöldið í hnefaleikum verður haldið hér á landi í apríl næstkomandi. Þar mun okkar fremsti kappi í íþróttinni, Kolbeinn Kristinsson stíga inn í hringinn. Atvinnumannahnefaleikar eru bannaðir hér á landi samkvæmt lögum sem Kolbeinn segir barn síns tíma. Nú á að kýla á þetta í orðsins fyllstu merkingu og stíga inn í hringinn í Gamla bíó