Deila eyju með einhverjum sem hefur líf og dauða í hendi sér

Komin er út ný hrollvekja eftir Hildi Knútsdóttur sem er einna þekktust fyrir ungmennabækur sínar. Hún hefur þó verið að senda frá sér hrollvekjur í styttri kantinum fyrir fullorðna sem hlotið hafa góða dóma en Irpa er heldur lengri en lesendur hafa átt að venjast. „Þær hafa verið í kringum 20 þúsund orð en þessi er alveg 40 þúsund. Þetta er eiginlega skáldsaga,“ segir Hildur í samtali við Egil Helgason í Kiljunni á RÚV. En hver er Irpa og hvers vegna ákvað Hildur að skapa í kringum hana söguheim? „Irpa er gyðja eða jötunn sem er nefnd í nokkrum handritum svona „i forbifarten“. Hún og Þorgerður Hölgabrúður voru gyðjur Hákonar jarls í Jómsvíkingasögu og þær kröfðust mannafórna.“ „Ég var búin að ákveða að mig langaði að skrifa hrollvekju um einhvers konar goðmagn en mig langaði að finna einhverja sem væri lítið vitað um. Irpa er mjög dularfull, það er bara rétt minnst á hana í nokkrum handritum og mjög lítið vitað um hana.“ Orðið irpa er komið af jarpur og merkir hin dökka. Það er talið að hún hafi mögulega verið einhvers konar frjósemisgyðja. „En svo týnist hún bara og ratar ekki inn í Snorra-Eddu til dæmis, sem er náttúrlega kannski kanónan. Hún týnist í sögunni. Ég ímynda mér að hún hafi þá kannski endað á þessari eyju,“ segir Hildur því sagan gerist á skáldaðri eyju fyrir austan land sem nefnist Varpey. Fer að gruna að þau séu ekki ein á eyjunni Sagt er frá unga parinu Eddu og Atla sem hafa glímt við ófrjósemi um langt skeið. Eftir ítrekað fósturlát þráir Edda tilbreytingu. „Þau eru komin með ógeð á lífinu í Reykjavík. Allir vinir þeirra eru að hlaða niður börnum og þau eru komin með nóg af öllu.“ „Þau sjá auglýsta eyju til sölu á Austurlandi og sjá þar gott tækifæri í að byggja upp ferðaþjónustu og flytja á eyjuna.“ Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli og brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring er krökkt af fiski. „Hún er kannski of gróðursæl miðað við breiddargráðu,“ segir Hildur. „Svo fer Eddu að gruna að það sé einhver fyrir á eyjunni, einhver sem vilji ekki hafa þau þar.“ Þetta er landnámsjörð en enginn hefur getað búið á eyjunni í langan tíma þótt margir hafi reynt. Gaman að fara ótroðnar slóðir Hildur segir mjög skemmtilegt að finna viðfangsefni sem ekki hefur verið mikið fjallað um. „Ég verð að þakka frænku minni, Þórdísi Eddu Jóhannesdóttur, sem skrifaði doktorsritgerð um Jómsvíkingasögu. Það var hún sem laumaði að mér hugmyndinni um Irpu.“ Irpa er fimmta hrollvekja Hildar og sú fyrsta sem gerist utan borgarmarkanna. Bækur hennar fyrir fullorðna koma iðulega út eftir jólin. „Við ræddum það, ég og forlagið mitt, hvort við ættum að gefa þessa út fyrir jólin en af því að mig langar að halda áfram að skrifa unglingabækur líka þá var það lendingin að unglingabækurnar mínar kæmu út fyrir jólin og þessar þá eftir jól í kilju.“ Hrollvekjur Hildar hafa vakið alheimsathygli, sér í lagi þegar The New York Times útnefndi Myrkrið milli stjarnanna eina af tíu bestu hrollvekjum ársins 2024. Bókin hefur jafnframt verið tilnefnd bæði til Dublin-bókmenntaverðlaunanna og World Fantasy-verðlaunanna. Kvikmyndarétturinn að henni hefur verið seldur erlendum framleiðslufyrirtækjum. „Þetta hefur gengið mjög vel úti. Það er búið að þýða þessa á ensku og ég er búin að selja kvikmyndaréttinn að henni líka. Ég seldi hann fyrir alveg einu og hálfu ári,“ segir Hildur um Irpu sem kemur út á ensku 2027. „Það verður bara mjög spennandi að sjá hvernig viðtökur hún hlýtur. Svo eru Gestir að koma út í maí á ensku.“ Hildur segist vera búin að skrifa sína næstu nóvellu sem er um Selkollu, draug eða skrímsli sem finna má í þjóðsögum frá tólftu öld. „Þannig að ég er að færa mig enn þá lengra aftur í tímann. Við eigum svo ógeðslega mikið af þjóðsögum og alls konar sem við erum ekki farin að nota mikið endilega.“ „Þannig að ég hef um mjög auðugan garð að gresja þar.“ „Hún týnist í sögunni og ég ímynda mér að hún hafi endað á þessari eyju,“ segir Hildur Knútsdóttir um gyðjuna Irpu sem lítið hefur verið fjallað um en verður að söguhetju í nýjustu hrollvekju Hildar. Rætt var við Hildi Knútsdóttur í Kiljunni á RÚV. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.