Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassviðris og hríðar víða um landið. Lægð liggur 200 kílómetrum vestur af Bjargtöngum og færist hægt og bítandi til norðvesturs. Viðvaranir eru í gildi fyrir Suðurland, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland Vestra, Norðurland eystra og Miðhálendið. Þær síðustu falla úr gildi klukkan 16:00 í dag. Búast má við sunnan og suðvestan 15 til 25 metrum á sekúndu, hvassast við fjöll á norðan- og vestanverðu landinu með hviðum upp í 35 metra á sekúndu. Einnig má eiga von á éljagangi á þessum slóðum og segir Veðurstofan frekar varasamt að vera á ferð. Á fjallvegum verður skafrenningur með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Dregur úr vindi á morgun. Þá gerir veðurspáin ráð fyrir suðlægri átt, 8 til 15 metrum á sekúndu, og éljum eða slydduéljum í flestum landshlutum. Þá eru einnig líkur á eldingum, einkum sunnan- og vestantil.