Móðir mín trúði á mátt bænarinnar. Bæði til góðs og til ills. Hún sagði að þegar að væri gáð lægju allir menn á bæn og það öllum stundum. Mikilvægt væri að samsama sig hinu góða og jákvæða í tilverunni. Takmarkið skipti máli.