Kíkjum í pakkann!

Það er spennandi að kíkja í pakkann. Flest munum við þó eftir að það hafi verið harðbannað! Og líklega munum við flest eftir að hafa séð pakka undir trénu á Þorláksmessu og e.t.v. bankað í hann, lyft honum upp, jafnvel hrist hann og velt vöngum. Við sem eigum börn og/eða barnabörn sjáum þau gera það sama, og spennan er mikil. En það er bannað í kíkja í pakkann á Þorláksmessu.