Einn drengur í með­ferð á nýju með­ferðar­heimili

Meðferðarheimilið Lækjarbakki hóf störf í nýju húsnæði í Gunnarsholti og tók á móti sínu fyrsta barni í gær. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að opnunin marki mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu.