Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant

Mercedes ökumennirnir George Russell og Kimi Antonelli voru sneggstir í tímatöku fyrir fyrstu Formúlu 1 keppni ársins í Ástralíu. Isack Hadjar hjá Red Bull verður þriðji en liðsfélagi hans, Max Verstappen, klessti út í kant.