Það er flestum mikið áfall að greinast með krabbamein og algengt að fólk upplifi sig í lausu lofti. Margir hafa verið með einkenni í lengri eða styttri tíma og í rannsóknum hjá læknum. Óvissanum það sem tekur við er erfið og getur valdið kvíða en oft finnur fólk fyrir vissum létti þegar rannsóknarniðurstöður og meðferðaráætlun liggja fyrir.