Horfur breytast úr stöðugum í jákvæðar

Horfur fyrir lánshæfi ríkissjóðs breytast úr stöðugum í jákvæðar hjá matsfyrirtækinu S&P Global Ratings. Er það byggt á sterkri stöðu ríkisfjármála og væntingum um áframhaldandi bata á næstu tveimur árum. Fjármála- og efnahagsráðherra segir þetta hvatningu til að halda áfram af festu.