Ekki náðst í 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka

Tæplega 120 Íslendingar sem voru á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum hafa yfirgefið svæðið, eiga bókað flug eða ætla sér ekki að yfirgefa svæðið. Mál 47 einstaklinga af þeim sem óskuðu eftir aðstoð við að komast í burtu eru enn í vinnslu. Þetta kemur fram í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Þar segir að viðbragðsteymi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hafi sent tölvupóst fyrir hádegi á fimmtudag þar sem fólk á svæðinu hafi verið beðið um að láta vita hvort það þyrfti á aðstoð að halda eða ekki. Að morgni föstudags áttu 150 einstaklingar eftir að svara og hóf viðbragðsteymið því að hringja í alla á listanum til þess að hægt væri að draga upp skýra mynd af stöðunni. Ekki hefur náðst í 26 manns, en borgaraþjónustan hvetur viðkomandi til þess að láta vita af sér við fyrsta tækifæri. Senda upplýsingar um björgunarflug þegar þær berast Í tilkynningunni segir jafnframt að borgaraþjónustunni berist tilkynningar um björgunarflug með reglulegu millibili og séu upplýsingar um þau sendar til fólks á áhrifasvæðum eftir því sem við eigi. Björgunarflugin séu flest frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Óman og Sádí Arabíu þar sem lofthelgi annarra ríkja á svæðinu sé að mestu lokuð. Einnig séu almenn farþegaflug í boði frá Múskat í Óman og Riyadh í Sádí-Arabíu.