120 Íslendingar fengið úrlausn en 47 bíða enn aðstoðar

Tæplega 120 Íslendingar sem voru á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum hafa annaðhvort yfirgefið svæðið, eiga bókað flug þaðan eða hafa ákveðið að halda kyrru fyrir. Mál 47 einstaklinga sem óskuðu eftir aðstoð við að komast í burtu eru hins vegar enn í vinnslu hjá borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins.