Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tvær líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur í nótt. Í báðum tilvikum hlutu þeir sem ráðist var á áverka í andliti. Þeir voru fluttir á slysadeild Landspítalans, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir. Mennirnir sem eru grunaðir um árásirnar voru handteknir í nótt og eru enn í haldi. Þeir verða yfirheyrðir síðar í dag og líklega verður þeim sleppt að því loknu. Þeir eru báðir grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu ávana- og fíkniefna. Lögregla telur að áhaldi hafi verið beitt í annarri árásinni en í hinni er ekki grunur um það að svo stöddu.