Hafa ekki náð á 26 Ís­lendinga í Mið-Austurlöndum

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendingar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu.