Nýr skemmtiþáttur, Góðir Íslendingar , hefst á RÚV laugardagskvöldið 28. mars. Hann er unninn af RÚV í samstarfi við Atlavík og er sex þátta fjölskylduskemmtun í beinni útsendingu úr Stúdíói A fyrir fullum sal af áhorfendum þar sem allt getur gerst. Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir er aðalstjórnandi. „Þátturinn Góðir Íslendingar sameinar íslenskt grín og tónlist og kafar ofan í íslenska menningu með húmor og lifandi stemningu að leiðarljósi. Í þáttunum er uppteknum atriðum í hæsta gæðaflokki blandað við leikin atriði í beinni útsendingu ásamt lögum, sem allir þekkja, í nýjum búningi,“ segir í tilkynningu um nýja þáttinn. Hildur Vala fær til sín fjölbreyttan hóp landsþekktra skemmtikrafta í hverjum þætti. Tónlistarstjórn er í höndum Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar. Leikstjórar eru Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Þeir stóðu meðal annars að Áramótaskaupinu 2025 og IceGuys-þáttunum. Nýr skemmtiþáttur hefst á RÚV laugardagskvöldið 28. mars. Sex þættir verða í beinni útsendingu. Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir er aðalstjórnandi og fær með sér landsþekkta skemmtikrafta í hverjum þætti. „Gerist eitthvað sem enginn gat séð fyrir“ „Það er mikil áskorun og mjög skemmtilegt að þróa þennan stóra sjónvarpsviðburð í samstarfi við RÚV. Við lítum á þetta sem nýsköpun í íslensku sjónvarpi, þar sem tónlist, lifandi grín og skemmtilegasta fólk landsins kemur saman með sannkallaða laugardagsskemmtibombu. Við ráðumst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, bein útsending sex laugardagskvöld í röð á stærsta sviðinu, en við erum umkringdir hæfileikafólki á öllum póstum og það róar aðeins taugarnar, sem eru engu að síður vel þandar, það verður að viðurkennast,“ segir Hannes Þór Halldórsson. „Stundum er það besta við beinar útsendingar að það gerist eitthvað sem enginn gat séð fyrir. Í sex þáttum, sem eru klukkutími hver, verður ekki alltaf allt fullkomið en þegar teymið er sterkt verður hið óvænta hluti af galdri kvöldsins,“ segir Hannes Þór Arason. Aldrei verið reynt áður hér á landi Þau sem vilja fá tækifæri til að vera í sjónvarpssal geta skráð sig á godirislendingar@ruv.is. Um 100 manns komast að í hverjum þætti. „Svona fyrirkomulag á skemmtiþætti hefur aldrei verið reynt áður hér á landi þar sem skemmtiatriði eru leikin í beinni útsendingu fyrir framan alþjóð í bland við fyrir fram upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Það má segja að þetta verði nánast eins og Áramótaskaup í beinni útsendingu," segir Eva Georgs. Ásudóttir, dagskrárstjóri sjónvarps á RÚV. Fyrsti þátturinn verður í beinni útsendingu laugardaginn 28. mars.