Borga fyrir ull sem annars er metin sem verðlaus

Fjölskyldan á Rauðbarðaholti 2 í Dalabyggð hóf rekstur nýrrar ullarvinnslu vorið 2025. Rætt var við Ingibjörgu Þórunni Steinudóttur um starfsemina í þættinum Víðsvegar á Rás 1. Ingibjörg segir að allt hafi þetta byrjað í réttum haustið 2022. Þá tók hún fyrst eftir hversu mikill munur var á lambsull og ærull. „Þá langaði mig að prjóna mér peysu úr lambsull, sem ég taldi að yrði mun mýkri en lopapeysan sem ég var að prjóna mér heima, akkúrat á þeim tíma.“ Hugmyndin vatt upp á sig og um tveimur og hálfu ári síðar höfðu þau fjárfest í ullarvinnslutækjum og voru byrjuð að spinna band úr ull frá bændum í Dalabyggð. Ingibjörg segir að markmiðin með ullarvinnslunni séu meðal annars að viðhalda litum íslenska sauðfjárkynsins. Þau taka því við litum sem yfirleitt eru metnir verðlausir. „Þar eru golsóttu litirnir, flekkóttu litirnir, grámórautt og allir dásamlegu litirnir, sem ég held að okkar uppáhaldskindur séu á litinn,“ segir Ingibjörg. „Og mórautt er ekkert það sama og mórautt. Stundum færðu mjög dökkan mórauðan og stundum mjög ljósan. En við leyfum því bara að njóta sín. Við erum ekkert að reyna að jafna litinn, við leyfum þessu bara að koma eins og náttúran segir til um.“ Rætt var við Ingibjörgu Þórönnu Steinudóttur í þættinum Víðsvegar á Rás 1. Í þættinum fengu hlustendur að kynnast sveitarfélaginu Dalabyggð. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. Eigendur nýrrar ullarvinnslu í Dalabyggð segja markmiðið með vinnslunni tvíþætt. Annars vegar að hækka ullarverð til bænda og hins vegar að stuðla að því að viðhalda litum íslenska sauðfjárkynsins.