Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir flokkinn eiga mikið erindi í íslenskum stjórnmálum því vinstri flokkar leiti sífellt meira til hægri. Hún segist hvergi nærri hætt þó að hún hafi ekki gefið kost á sér sem formaður áfram og er bjartsýn á framtíð flokksins. Landsfundur VG stendur um helgina og á morgun verður nýr formaður valinn. Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Hlynur Már Ragnheiðarson hafa sóst eftir því að leiða flokkinn. Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður gefur heldur ekki kost á sér í forystu flokksins. Svandís flytur sína síðustu ræðu sem formaður í dag. Hún segir þetta vera mikil kaflaskil í hennar lífi en að hún sé ekki hætt í VG. „Ég held að ég verði partur af öflugri grasrót hreyfingarinnar. Ég held að það sé bara partur af eðlilegri og góðri þróun í hreyfingunni. Svo þarf maður líka að velta fyrir sér nýjum köflum í eigin lífi, það skiptir líka máli,“ segir Svandís. „Það er mikilvægt lífsmark í stjórnmálahreyfingu að það sé þróttur fyrir breytingar í forystunni. Það er svo langt frá því að við séum hér að fara að leggja upp laupana eða hætta einhverju. Við erum að halda áfram.“ Svandís segir VG þurfa að vera skýra rödd til vinstri því aðrir flokkar leiti sífellt meira til hægri. Hún telur vera eftirspurn eftir raunverulegum vinstri valkosti. „Við sjáum það í pólitíkinni hér heima að það hefur orðið þessi hliðrun í íslenskum stjórnmálum, þar sem flokkar sem áður töldu sig vera vinstra megin við miðju eru komnir yfir í hægrið og farnir að keppa við hægri flokka um það hverjir geta gengið lengst í niðurskurðarstefnu, í ágangi gagnvart náttúruvernd, í yfirgangi gagnvart fólki af erlendum uppruna. Ég held að það sé öllum ljóst að það er að skapast rými vinstra megin.“ Hún er bjartsýn á framtíð flokksins og segir hann eiga skýrt erindi. „Ég held að það sé engin spurning, að Vinstrihreyfingin grænt framboð hvílir á það traustum grunni, bæði hugmyndafræðilega og sögulega, en svo eigum við líka öfluga innviði, við eigum kjördæmisráð, svæðisfélög, sveitarstjórnarmenn um allt land og svo framvegis þannig að við erum hvergi nærri af baki dottin. Þegar erindið er svona skýrt eins og það er núna í stjórnmálunum þá höldum við okkar striki og horfum fram veginn.“