Óþokkar keyra sig alltaf í þrot

„Þessi ferð var algjörlega stórkostleg. Við fórum beint í mót á föstudeginum, þrjú lið frá okkur og fjögur bresk lið, síðan á völlinn að sjá leik í Championship-deildinni á laugardeginum og á sunnudeginum tókum við þátt í góðgerðarmóti. Það voru því þreyttir fætur sem komu heim á mánudeginum. En allir heilir og sáttir.“