Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki halda uppi málþjófi á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið, segir Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður flokksins. Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. „Við erum ekki að fara í málþóf í þessu máli, það er ekki að fara að gerast. Við getum bara hætt að tala um það. En hins vegar er það er áhugavert að sjá þetta mál sem sýnir svart á hvítu að ríkisstjórnin er búin að gefast upp á því sem hún lagði af stað með,“ sagði Guðlaugur Þór í Vikulokunum á Rás 1. Trúir ekki að menn tefji það að þjóðin fái að segja sitt álit Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, telur það raunsætt að ná málinu í gegnum þingið fyrir þinglok. „Ég hef ekki neina trú á öðru en að þetta klárist. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því, að menn ætli að fara í málþóf eða tefja eða koma í veg fyrir að þjóðin fái að segja sitt álit á því hvert samfélagið eigi að stefna hvað þetta varðar. Á sama tíma og menn eru að tala um fullveldi og sjálfstæði.“ Guðlaugur Þór segir að ríkisstjórnin þurfi að bera þá virðingu fyrir þjóðinni að vera tilbúin að ræða hvað raunverulega felst í inngöngu í ESB. „En þeir munu örugglega keyra þetta í gegn. Þú getur gagnrýnt, eðlilega, tímasetninguna og annað slíkt. Að hafa þetta í lok ágúst er svolítið sérstakt. En gott og vel, ég held að þeir munu keyra þetta allt saman í gegn án þess að vera neitt að huga að því. Það verður ekki farið í neitt málþóf í þessu máli, en kjarni málsins verður ræddur.“ Alla umræðuna í Vikulokunum, þar sem einnig var rætt við Lilju Alfreðsdóttur, formann Framsóknarflokksins, og Guðmund Ara Sigurjónsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, má heyra í spilaranum hér að neðan. Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki halda uppi málþjófi á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið, segir þingmaður flokksins.