Jónína áfram oddviti Framsóknar í Múlaþingi

Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í Múlaþingi. Listinn var samþykktur á félagsfundi í dag. Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi, er í öðru sæti og í þriðja sæti Þórey Birna Jónsdóttir, sauðfjárbóndi. Þar á eftir koma Björg Eyþórsdóttir og Guðmundur Bj. Hafþórsson. „Við bjóðum fram lið sem sameinar mikla reynslu en einnig nýtt blóð og nýja sýn á málefnin. Þetta er listi fólks sem þekkir sveitarfélagið, lifir og starfar í samfélaginu og vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp sterkt og samheldið Múlaþing,“ er haft eftir Jónínu í tilkynningu. Listann í heild má sjá HÉR. Aðsend