Efstu tíu sæti lista Pírata í Reykjavík verða staðfest í dag og listinn kynntur eftir helgi. Prófkjöri lauk í gær. Kristinn Jón Ólafsson, nýr oddviti flokksins, segir spennandi tíma framundan. Ekki liggur fyrir hvort Alexandra Briem þiggi eða hafni öðru sæti listans en Kristinn segir að þó svo að niðurstaða sé bindandi geti fólk beðið um að vera fært neðar eða hafnað sæti.