Óttast að landsliðskonur verði stimplaðar föðurlandssvikarar

Kvennalandslið Íran í fótbolta keppti á Asíumótinu í gærkvöld og landsliðskonurnar ákváðu að taka ekki undir þegar íranski þjóðsöngurinn var spilaður. Lýsandi leiksins í ríkissjónvarpinu segir þær svíkja föðurlandið á stríðstímum og leikmannasamtökin hafa miklar áhyggjur af ummælunum.