Viðbrögð eftir leik: Seinni góður og liðið þarf þolinmæði í næsta glugga

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 2-0 tap gegn sterku liði Evrópumeistara Englands í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2027 í dag. Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari segist sáttur með seinni hálfleik hjá íslenska liðinu. „Við breyttum aðeins skipulaginu og náðum að loka betur á þetta. Það gerði það að verkum að mér fannst þær ekki vera að skapa eins mikið í seinni hálfleik.“ Þorsteinn er þó heilt yfir ánægður með framlag íslenska liðsins í dag. „Við lögðum allt í þetta og ég er stoltur af liðinu.“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta laut í lægra haldi fyrir Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM 2027 í dag. Landsliðsþjálfarinn er sáttur með seinni hálfleik og fyririliðinn segir liðið þurfa þolinmæði. Liðin mætast aftur í apríl. Alexandra er spennt að fá England á heimavelli Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á í leiknum en hún var ekki með í leik liðsins gegn Spáni. Hún segir íslenska liðið hafa átt meira inni gegn Evrópumeisturunum. „Ég er spennt að fá þær aftur eftir mánuð og fá annan séns. Mér finnst við geta gert meira á móti þessu liði og refsað þeim betur.“ Þolinmæðin með í næsta glugga Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Íslands segir að liðið þurfi að þora að halda betur í boltann og leita fleiri lausna. „ Við erum stundum að leita í fyrsta hlaup sem er oft erfitt af því að við erum búin að vera að verjast í langan tíma og það tekur mikla orku. Þá þurfum við stundum að geta pústað með boltann til að koma fleirum inn í teig og skapa meira í kringum teiginn.“ Íslenska liðið á tvo heimaleiki í aprílglugganum gegn Úkraínu og Englandi. Leikirnir fara fram 14. og 18. apríl.