Vor til vinstri opinberar efstu sætin

Vor til vinstri kynnti í dag efstu þrjú sætin fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, þar sem boðið er sameiginlega fram með Vinstri grænum undir merkjum Vinstrisins. Sanna Magdalena Mörtudóttir er oddviti en Ásta Þórdís Skjalddal er önnur, og verður í fjórða sæti hjá Vinstrinu, og Arna Magnea Danks þriðja, sem gefur fimmta sætið á lista Vinstrisins. Efstu tvö sæti Vinstri grænna skipa 2. og 3. sætið á lista Vinstrisins. Líf Magneudóttir var hlutskörpust í forvali VG og Stefán Pálsson varð í öðru. Ljósmynd / Aðsend