Þrír leikir eru spilaðir í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Topplið úrvalsdeildarinnar, Arsenal, sótti þriðjudeildarliðið Mansfield Town heim. Mansfield er í fallbaráttu í C-deildinni. Arsenal byrjaði leikinn með tvo 16 ára peyja í liðinu; þá Max Dowman og Marli Salmon, fædda 2009. Mansfield sló Burnley og Sheffield United út á leið sinni í 16-liða úrslitin en var án fyrirliða síns Ryan Sweeney í dag sem er meiddur. Noni Madueke skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 40. mínútu og kom Arsenal í 1-0 sem var staðan í hálfleik. William Evans var þó fljótur að jafna fyrir heimamenn í síðari hálfleik og staðan hélst jöfn fram á 66. mínútu þegar Eberechi Eze þrumaði boltanum í netið og tryggði Arsenal 2-1 sigur og sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Liverpool náði fram hefndum gegn Wolves Liverpool komst einnig áfram í 8-liða úrslitin í gærkvöld með 3-1 útisigri á Wolves. Liverpool náði þar með að hefna ófaranna frá því á þriðjudagskvöld sl. þegar Wolves vann 2-1 sigur á Liverpool í úrvalsdeildinni með sigurmarki í uppbótartíma. Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik í gær komst Liverpool í 2-0 á 95 sekúndna kafla í upphafi seinni hálfleiks. Andy Robertson skoraði af 25 metra færi sitt fyrsta mark síðan í september áður en Mohamed Salah jók forystuna í 2-0. Curtis Jones kom Liverpool í 3-0 á 74. mínútu en Hee-Chan Hwang klóraði í bakkann í uppbótartíma og lagaði stöðuna fyrir Wolves. Tveir leikir í kvöld Tveir leikir verða í bikarkeppninni í kvöld, b-deildarliðið Wrecham fær Chelsea í heimsókn klukkan 17:45 og Newcastle tekur á móti Manchester City klukkan 20:00.