Vetrarólympíumót fatlaðra var formlega sett í Veróna á Ítalíu í gærkvöldi. Í dag var svo keppt til úrslita í tveimur greinum; bruni og skíðaskotfimi karla og kvenna. Keppt var í bruninu í Cortina, sömu brekku og á Ólympíuleikunum í febrúar. Keppninni er skipt í þrjá hluta; sitjandi, standandi og keppni sjónskertra í karla- og kvennaflokki. Í flokki sjónskertra er jafnræðis gætt með því að hylja augu allra og í þessum flokki er keppt með leiðbeinanda sem vísar veginn. Systkini unnu í bruni sjónskertra; Veronika Aigner í kvennaflokki sem var 48 sekúndubrotum á undan hinni ítölsku Chiara Mazzel og í karlaflokki Johannes Aigner sem vann öruggan sigur. Vetrarólympíumót fatlaðra var formlega sett í Veróna á Ítalíu í gærkvöldi. Í dag var svo keppt til úrslita í tveimur greinum; bruni og skíðaskotfimi karla og kvenna. Í bruni sjónskertra stóðu systkini uppi sem sigurvegarar. Er ríkjandi ólympíumeistari í öllum fimm greinum alpagreina Norðmaðurinn Jesper Pedersen varð hlutskarpastur í sitjandi flokknum og er sem stendur ríkjandi Ólympíumeistari í öllum fimm greinum alpagreinanna því hann vann allar hinar fjórar greinarnar fyrir fjórum árum en varð þá annar í bruni sem honum tókst að toppa í morgun. Aftur þrefalt hjá Úkraínu Í skíðaskotfiminni unnu Úkraínumenn þrefalt í 7,5 km sprettgöngu eins og í Peking fyrir fjórum árum. Eins og í bruninu er keppt í standandi flokki, sitjandi og flokki sjónskertra. Oleksandr Kazik frá Úkraínu keppir í síðastnefnda flokknum, hann vann silfur 2022 en náði gulli í dag. Landa hans Oleksandra Kononova vann í standandi kvennaflokki og landinn Taras Rad í sitjandi karlaflokki. Arna Sigríður Albertsdóttir er fulltrúi Íslands á mótinu. Hún keppir í sprettgöngu á þriðjudaginn og 10 kílómetra göngu á miðvikudaginn. RÚV sýnir beint frá mótinu alla keppnisdagana.