Alræmdur morðingi drepinn í bresku fangelsi

Maður sem varð tveimur barnungum stúlkum að bana í Bretlandi skömmu eftir aldamót var drepinn af samföngum. Morðin á stúlkunum vöktu heimsathygli og þykja meðal átakanlegustu sakamála Bretlands. Ian Huntley fékk tvo lífstíðardóma fyrir að myrða Holly Wells og Jessica Chapman árið 2002. Þær voru tíu ára. Líkamsleifar þeirra fundust utandyra eftir þrettán daga leit sem var ein sú umfangsmesta í sögu Bretlands. Um 400 lögreglumenn unnu að rannsókn málsins. Grunur beindist að Huntley eftir að hann sagðist hafa rætt við stúlkurnar skömmu eftir að síðast sást til þeirra. Lögreglu þótti hegðun hans einkennileg, meðal annars vegna þess að hann spurðist fyrir um endingartíma lífsýna. Kærasta hans, sem veitti honum fjarvistarsönnun við upphaf rannsóknarinnar, var sakfelld fyrir að hindra framgang réttlætisins og sat í fangelsi í um tvö ár. Huntley var handtekinn í kjölfar þess að lögregla fann hluta af fatnaði stúlknanna á vinnustað hans. Hann var vistaður í öryggisfangelsi í Durham. Huntley var fluttur á sjúkrahús fyrir rúmri viku með alvarlega áverka, meðal annars á höfði. Talið er að ráðist hafi verið á hann með málmáhaldi. Hann lést í gær eftir að hafa verið tekinn úr öndunarvél. Grunur leikur á að samfangar hafi ráðist á hann en lögreglan rannsakar málið.