Bretar búa flugmóðurskip til brottfarar

Bretar búa sig nú undir að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales til Mið-Austurlanda fari svo að bresk stjórnvöld ákveði að senda það á vettvang átakanna við Íran.